Skip to main content

Vorganga í Laugardalnum í Reykjavík á mæðradaginn 10. maí

Eftir maí 2, 2009Fréttir

 

Vorið góða grænt og hlýtt
græðir fjör um (Laugar)dalinn …

Styrktarfélagið Göngum saman efnir til vorgöngu fyrir alla fjölskylduna á mæðradaginn sunnudaginn 10. maí. Lagt verður af stað frá Skautahöllinni kl. 11 og gengið um Laugardalinn í um það bil klukkustund.

Göngunni á mæðradaginn er ætlað að vekja athygli á Stóru styrktargöngu félagsins sem haldin verður í þriðja sinn 6. september næstkomandi. Þá verður gengið á nokkrum stöðum á landinu. Stóra styrktargangan er aðalfjáröflunarleið félagsins. Vorgangan 10. maí markar upphafið að undirbúningi fyrir Stóru styrktargönguna í haust en þá verða gengnar þrjár vegarlengdir, 3, 5 og 10 kílómetrar.

Ekkert þátttökugjald er í vorgönguna en frjáls framlög eru vel þegin. Einnig verður hægt að kaupa kort, boli og buff með merki félagsins. Andvirði sölunnar rennur óskipt í styrktarsjóð félagsins.

 

Göngum saman, fögnum vori og njótum samveru á mæðradaginn.

Allir velkomnir.