Þann 10. október 2013 veitti Göngum saman íslenskum rannsóknaraðilum á sviði grunnrannsókna á brjóstakrabbameini rannsóknarstyrki að fjárhæð kr. 8 milljónir króna. Frá upphafi hefur Göngum saman úthlutað rúmum 40 milljónum króna á sex árum.
Styrkurinn 2013 skiptist á milli sex aðila:
Anna Marzellíusardóttir fyrir verkefnið „Leit að áhrifabreytingum í erfðaefni fjölskyldna með háa tíðni brjóstakrabbameins“.
Birna Þorvaldsdóttir fyrir verkefnið „Hefur telomer-lengd í blóði forspárgildi um brjóstakrabbameinsáhættu hjá BRCA2 arfberum?“
Edda Sigríður Freysteinsdóttir fyrir verkefnið „Leit að brjóstakrabbameinsgenum í fjölskyldum án BRCA1/2 tengsla“.
Inga Reynisdóttir fyrir verkefnið „Leit að samrunagenum í brjóstaæxlum sem bera mögnuð litningasvæði“.
Laufey Tryggvadóttir fyrir verkefnið „Áhrif meðferðar og æxliseiginleika á horfur brjóstakrabbameinssjúklinga með BRCA2 stökkbreytingar“.
Sigríður Þóra Reynisdóttir fyrir verkefnið „miRNA tjáning í BRCA2-tengdu brjóstakrabbameini“.