Skip to main content

Sagan

Upphafið að stofnun styrktarfélagsing Göngum saman má rekja til vorsins 2007 er hópur kvenna, sem flestar áttu það sameiginlegt að tengjast Gunnhildi Óskarsdóttur núverandi formanni félagsins á einhvern hátt, ákváðu að taka þátt í Avon göngunni í New York 6.-7. október 2007.

Til að taka þátt í Avon göngunni þurfti hver og ein að safna 1.800 dollurum til styrktar rannsóknum á krabbameini í brjóstum og meðferðarúrræðum kvenna með brjóstakrabbamein. Göngum saman hópurinn ákvað í kjölfarið að stofna félag sem hefði það að markmiði að styrkja innlendar grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini og var félagið stofnað 13. september 2007.

Vorið, sumarið og haustið 2007 fóru í að safna peningum fyrir Avon framlaginu og ekki síður í styrktarsjóð Göngum saman. Samhliða því voru þrotlausar æfingar undir stjórn einnar í hópnum, Guðnýjar Aradóttur stafgönguþjálfara. Göngukonur komu sér í gott form þannig að þær gætu gengið keikar og uppréttar um götur New York þegar kæmi að stóru stundinni. Þegar á hólminn var komið stóðu þær sig allar með miklum sóma og gengu syngjandi glaðar í mark eftir 63 km.

Göngum saman konur á lokasprettinum í Avon göngnni New York 2007.