Skip to main content

Þann 27. október sl. veitti Göngum saman 6,7 milljónum króna í rannsóknarstyrki til vísindamanna á sviði grunnrannsókna á brjóstakrabbameini. Með þessari styrkveitingu hefur Göngum saman veitt alls rúmum 107 milljónum króna til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini frá stofnun félagsins árið 2007.

Þrír aðilar fengu styrk að þessu sinni:

Arna Steinunn Jónasdóttir, meistaranemi í líf- og læknavísindum við Háskóla Íslands hlaut 3 milljónir króna til verkefnisins „Hlutverk peroxidasin í eðlilegum og illkynja brjóstkirtli“.

Clara Valls Ferré, meistaranemi í líf- og læknavísindum við Háskóla Íslands hlaut 2,2 milljónir króna til verkefnisins „Æxlingar úr brjóstakrabbameinssjúklingum meðhöndlaðir með æðaþelssértækum sameindalyfjum“.

Sævar Ingþórsson, lektor við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands hlaut 1,5 milljónir króna til verkefnisins „Ummyndunaráhrif HER2 yfirtjáningar í heilbrigðum brjóstaþekjufrumum“.

Styrkveitingin var um margt óvenjuleg í ár vegna Covid-19 faraldursins. Hún fór fram á Zoom fjarfundi, þar sem styrkþegar, félagsmenn og velunnarar félagsins um allt land og einnig erlendis frá tóku þátt. Tvíeykið Vísur og skvísur fluttu tónlistaratriði.