Skip to main content

Styrkir 2022

Þann 11. október 2022 veitti Göngum saman 15 milljónum króna í rannsóknarstyrki til vísindamanna á sviði grunnrannsókna á brjóstakrabbameini.

Fimm aðilar fengu styrk að þessu sinni:

Aldís María Antonsdóttir, meistaranemi í lífeindafræði við Háskóla Íslands hlaut 2,5 milljónir króna til verkefnisins „Hlutverk peroxidasin (PXDN) í meinvarpandi brjóstakrabbameini“.

Alexander Örn Kárason, meistaranemi í lífeindafræði við Háskóla Íslands hlaut 2,5 milljónir króna til verkefnisins „Óstöðugir telomerar í BRCA2 vanvirkum brjóstafrumulínum í tengslum við nýja marksækna meðferð gegn POLQ og RAD522“.

Berglind Eva Benediktsdóttir, dósent í lyfjafræði við Háskóla Íslands hlaut 2,5 milljónir króna til verkefnisins „Sérhannaðar utanfrumubólur með sækni gegn þríneikvæðum brjóstakrabbameinum“.

Kristrún Ýr Holm, doktorsnemi í heilbrigðisvísindum við Háskóla Íslands, hlaut 4 milljónir króna til verkefnisins „Leit að lífmerkjum fyrir snemmgreiningu brjóstakrabbameina“.

María Rose Bustos, rannsóknamaður við Háskóla Íslands, hlaut 3,5 milljónir króna til verkefnisins „Tap á arfblendni og tjáning estrógen viðtaka í brjóstakrabbameinum BRCA2999Δ5 arfbera“.

Mynd frá úthlutun styrkjanna.  Ljósmyndari Þórdís Erla Ágústsdóttir

Frá vinstri: María Rose Bustos, Kristrún Ýr Holm, Gunnhildur Óskarsdóttir formaður Göngum saman, Alexander Örn Kárason, Aldís María Antonsdóttir, Berglind Eva Benediktsdóttir.