Skip to main content

Styrkir 2015

Þann 7. október 2015 veitti Göngum saman 10 milljónum króna í rannsóknarstyrki til vísindamanna á sviði grunnrannsókna á brjóstakrabbameini. Félagið hefur þá veitt alls rúmum 60 milljónum króna til rannsókna frá stofnun þess árið 2007.

Fimm aðilar fengu styrk á þessu sinni:

Birna Þorvaldsdóttir, doktorsnemi við Háskóla Íslands, hlaut 3 milljóna króna styrk fyrir verkefnið „Telomerar og brjóstakrabbamein“.

Edda Sigríður Freysteinsdóttir, náttúrufræðingur á Landspítala, hlaut 1,4 milljóna króna styrk fyrir verkefnið „ Ættlægt brjóstakrabbamein og möguleg áhættugen“.

Erika Morera, doktorsnemi við Háskóla Íslands, hlaut 1 milljón krónur í styrk fyrir verkefnið „Samanburður á eðlilegri og illkynja bandvefsumbreytingu stofnfruma úr brjóstkirtli“.

Guðrún Valdimarsdóttir, lektor við Læknadeild Háskóla Íslands, hlaut 2 milljóna króna styrk fyrir verkefnið „Þyrnirósasvefn brjóstaæxlisfruma“.

Katrín Birna Pétursdóttir, meistaranemi við Háskóla Íslands, hlaut 2,6 milljónir króna í styrk fyrir verkefnið „Breytingar á genatjáningu í lyfjaónæmum brjóstastofnfrumulínum í tengslum við stofnfrumueiginleika og aldehyde dehydrogenasa virkni (ALDH)“.