Skip to main content

Styrkir 2013

Þann 10. október 2013 veitti Göngum saman íslenskum rannsóknaraðilum á sviði grunnrannsókna á brjóstakrabbameini rannsóknarstyrki að fjárhæð kr. 8 milljónir króna. Frá upphafi hefur Göngum saman úthlutað rúmum 40 milljónum króna á sex árum.

Styrkurinn 2013 skiptist á milli sex aðila:

Anna Marzellíusardóttir fyrir verkefnið Leit að áhrifabreytingum í erfðaefni fjölskyldna með háa tíðni brjóstakrabbameins“.

Birna Þorvaldsdóttir fyrir verkefnið „Hefur telomer-lengd í blóði forspárgildi um brjóstakrabbameinsáhættu hjá BRCA2 arfberum?“

Edda Sigríður Freysteinsdóttir fyrir verkefnið „Leit að brjóstakrabbameinsgenum í fjölskyldum án BRCA1/2 tengsla“.

Inga Reynisdóttir fyrir verkefnið „Leit að samrunagenum í brjóstaæxlum sem bera mögnuð litningasvæði“.

Laufey Tryggvadóttir fyrir verkefnið „Áhrif meðferðar og æxliseiginleika á horfur brjóstakrabbameinssjúklinga með BRCA2 stökkbreytingar“.

Sigríður Þóra Reynisdóttir fyrir verkefnið „miRNA tjáning í BRCA2-tengdu brjóstakrabbameini“.