Skip to main content

Styrkir 2010

Miðvikudaginn 27. október 2010 veitti Göngum saman íslenskum rannsóknaraðilum á sviði grunnrannsókna á brjóstakrabbameini rannsóknarstyrki að fjárhæð 5 milljónir króna.

Styrkurinn var veittur í minningu Kristbjargar Marteinsdóttur en hún lést af völdum brjóstakrabbameins 11. nóvember 2009 tæplega 45 ára gömul.

Styrkurinn skiptist á milli fjögurra aðila:

Bylgja Hilmarsdóttir, doktorsnemi, fyrir verkefnið „Hlutverk PTP1B í stofnfrumum brjóstkirtils“.

Guðrún Birna Jónsdóttir, meistaranemi, fyrir verkefnið „Örflögugreining á æxlismerkjum sem tengjast sjúkdómshorfum í brjóstakrabbameini“.

dr. Helgi Sigurðsson, prófessor og yfirlæknir á Landspítala-háskólasjúkrahúsi, fyrir verkefnið „Lyfjanæmispróf á brjóstakrabbameinsfrumum“.

dr. Rósa Björk Barkardóttir, klínískur prófessor á Landspítala-háskólasjúkrahúsi, fyrir verkefnið „Stökkbreytileit á völdum litningasvæðum í fjölskyldum með háa tíðni krabbameins í brjóstum“.

Eins og undanfarin ár var hátíðleg stund í sal Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins er Gunnhildur Óskarsdóttir, formaður Göngum saman, afhenti styrkina með hjálp tveggja ungra stúlkna, Arngunnar og Unnar Maríu.