Skip to main content

Rannsóknarstyrkir Göngum saman

Styrktarsjóður Göngum saman styrkir grunnrannsóknir á krabbameini í brjóstum. Starfsemi félagsins miðar að því að safna fé og efla styrktarsjóð félagsins til að taka þátt í því mikilvæga starfi að rannsaka eðli og uppruna brjóstakrabbameins.

Frá stofnun félagsins hefur Göngum saman úthlutað nær 150 milljónum í rannsóknastyrki til íslenskra vísindamanna. Fyrsti styrkurinn var veittur árið 2007 en síðan hefur Göngum saman veitt styrki á hverju ári, nú síðast  15 milljónum króna í október 2023.

Opnað er fyrir umsóknir um styrki í júní ár hvert með umsóknarfresti í byrjun september. Vísindamenn og nemendur í rannsóknatengdu framhaldsnámi við íslenska háskóla og rannsóknastofnanir geta sótt um styrk. Skilyrði er að verkefnið flokkist sem grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini. Ekki er veittur styrkur til tækjakaupa, birtingar vísindagreina í opnum aðgangi né ferðastyrkir.

Umsækjendur skulu fylla út umsóknareyðublað sem birtist hér á síðunni þegar opnað hefur verið fyrir umsóknir og senda ásamt fylgigögnum á netfangið styrkir@gongumsaman.is fyrir umsóknarfrest.  Þá eru einnig birtar almennar upplýsingar og leiðbeiningar um útfyllingu umsóknar.

Styrkir eru veittir skv. áherslum félagsins og á grundvelli faglegs mats á gæðum rannsóknarverkefna. Stjórn Göngum saman áskilur sér rétt til að ákveða skiptingu styrkja, sem og að hafna öllum umsóknum.

Úthlutun styrkja fer fram í október en sá mánuður er helgaður baráttunni gegn brjóstakrabbameini.

Umsóknarfrestur árið 2023 er til 5. september.

Hér fyrir neðan má nálgast gögn vegna styrkumsóknar.

Umsóknareyðublað 2023 

Almennar upplýsingar og leiðbeiningar um útfyllingu umsóknar