Þann 6. október 2017 veitti Göngum saman 10 milljónum króna í rannsóknarstyrki til vísindamanna á sviði grunnrannsókna á brjóstakrabbameini. Frá stofnun félagsins árið 2007 hefur alls rúmum 80 milljónum króna verið veitt til rannsókna.
Styrkþegar Göngum saman árið 2017:
Anna Karen Sigurðardóttir, doktorsnemi við HÍ, – 1 milljón til verkefnisins: „Stýring greinóttrar formgerðar og bandvefsumbreytingar í eðlilegum og illkynja brjóstkirtli“.
Berglind Eva Benediktsdóttir, dósent við HÍ, – 2 milljónir til verkefnisins: ”Exósóm sem nýr meðferðarmöguleiki gegn þríneikvæðum brjóstakrabbameinum”.
Elísabet A. Frick, doktorsnemi við HÍ, – 2 milljónir til verkefnisins: ”Hlutverk miR-190b í þróun brjóstakrabbameins”.
Inga Reynisdóttir, sérfræðingur á meinafræðideild LSH, – 2,8 milljónir til verkefnisins: ”Hugsanleg áhrif sjálfsátsgens í framvindu brjóstakrabbameins“.
Sigurður Trausti Karvelsson, doktorsnemi við HÍ, – 2,2 milljónir til verkefnisins: ”Auðkenning efnaskiptabreytinga við bandvefsumbreytingu brjóstaþekju“.