Upphafið að stofnun styrktarfélagsing Göngum saman má rekja til vorsins 2007 er hópur kvenna, sem flestar áttu það sameiginlegt að tengjast Gunnhildi Óskarsdóttur núverandi formanni félagsins á einhvern hátt, ákváðu að taka þátt í Avon göngunni í New York 6.-7. október 2007.
Til að taka þátt í Avon göngunni þurfti hver og ein að safna 1.800 dollurum til styrktar rannsóknum á krabbameini í brjóstum og meðferðarúrræðum kvenna með brjóstakrabbamein. Göngum saman hópurinn ákvað í kjölfarið að stofna félag sem hefði það að markmiði að styrkja innlendar grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini og var félagið stofnað 13. september 2007.
Vorið, sumarið og haustið 2007 fóru í að safna peningum fyrir Avon framlaginu og ekki síður í styrktarsjóð Göngum saman. Samhliða því voru þrotlausar æfingar undir stjórn einnar í hópnum, Guðnýjar Aradóttur stafgönguþjálfara. Göngukonur komu sér í gott form þannig að þær gætu gengið keikar og uppréttar um götur New York þegar kæmi að stóru stundinni. Þegar á hólminn var komið stóðu þær sig allar með miklum sóma og gengu syngjandi glaðar í mark eftir 63 km.