Þann 23. október 2023 veitti Göngum saman 15 milljónum króna í rannsóknarstyrki til vísindamanna á sviði grunnrannsókna á brjóstakrabbameini.
Sex aðilar fengu styrk að þessu sinni:
Aðalgeir Arason, náttúrufræðingur við Landspítala og klínískur dósent við Háskóla Íslands hlaut 2,1 milljón króna til verkefnisins „Ítarleg könnun litningssvæða sem valda fjölgena brjóstakrabbameinsáhættu“.
Birta Dröfn Jónsdóttir, meistaranemi í líf- og læknavísindum við Háskóla Íslands hlaut 2,9 milljónir króna til verkefnisins „ALKBH3 og FTO: Nýir stjórnendur á viðgerðum á tvíþátta DNA brotum í brjóstakrabbameinum“.
Erna María Jónsdóttir, doktorsnemi við lyfjafræðideild Háskóla Íslands hlaut 3 milljónir króna til verkefnisins „Marksækni sérhannaðra unanfrumubóla gegn EGFR (HER-1) jákvæðum brjóstakrabbameinsfrumulínum“.
Jens G. Hjörleifsson, lektor í lífefnafræði við Háskóla Íslands hlaut 2 milljónir króna til verkefnisins „Þróun EGFR hindrandi peptíða gegn brjóstakrabbameini: Fjölþátta nálgun“.
Snævar Sigurðsson, sérfræðingur við læknadeild Háskóla Íslands hlaut 2 milljónir króna til verkefnisins „Nýjar aðferðir við arfgerðargreiningar á brjóstakrabbameinum“.
Valdís Gunnarsdóttir Þormar, doktorsnemi í heilbrigðisvísindum við Háskóla Íslands hlaut 3 milljónir króna til verkefnisins „Mynstur smásameinda í brjóstakrabbameinum: Möguleg lífmerki fyrir snemmgreiningu“.