Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram þann 23. ágúst. Búist er við mikilli aðsókn í hlaupið í ár og því mikilvægt að skrá sig í tæka tíð.
Fjórar vegalengdir verða í boði og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Í skemmtiskokkinu verður boðið upp á ýmsar upplifanir á braut, t.d. froðudiskó, furðuverur verða á kreik, götulistamenn og tónlistaratriði.
- Maraþon (42,2 km) fyrir 18 ára og eldri
- Hálfmaraþon (21,1 km) fyrir 15 ára og eldri
- 10 km hlaup fyrir 12 ára og eldri
- Skemmtiskokk fyrir alla aldurshópa
Hlaupastyrkur.is er heimasíða góðgerðarfélaganna, til að safna fyrir góðgerðarfélag þá ferðu inn á mínar síður eftir að þú hefur skráð þig. Þar velur þú Göngum saman, setur nafn og prófil mynd til að það birtist inni á hlaupastyrkur.is.
Þú finnur allar nánari upplýsingar um Reykjavíkurmaraþonið á rmi.is.