Minnum á afmælismálþingið á morgun
Í tilefni af 5 ára afmæli styrktarfélagsins Göngum saman efnir félagið til málþings um mikilvægi grunnrannsókna á brjóstakrabbameini. Málþingið verður haldið í Hátíðasal Háskóla Íslands fimmtudaginn 13. september nk kl. 15-18. Það er öllum opið og aðgangur ókeypis. Salurinn opnar kl. 14.45 og gefst gestum kostur á að hlýða á ljúfa tóna áður en dagskrá hefst. Gildi íslenskra rannsókna á brjóstakrabbameini
Dagskrá
15:00 Setning, Gunnhildur Óskarsdóttir, formaður Göngum saman15:05 Ávarp, Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra15:15 Does research in breast cancer matter for the general public?
Norman Freshney, forstöðumaður rannsókna hjá Breakthrough Breast Cancer í Bretlandi
15:45 Hverju hafa rannsóknir á brjóstakrabbameini á Íslandi skilað?
Helga Ögmundsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands
16:05 Tónlistaratriði, Karlakórinn Fóstbræður
16:15 Grunnrannsóknir, forsenda framfara í lækningum, Friðbjörn Sigurðsson læknir
16:30 Hverju getur samtakamáttur hugsjónafólks og vísindamanna áorkað? Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands
16:45 Göngum saman brjóstanna vegna, forsýning á fræðslumynd Göngum saman17:15 Málþingsslit
Fundarstjóri: Þórólfur Árnason
Erindi Norman Freshney er flutt á ensku en önnur dagskrá fer fram á íslensku
Að loknu málþingi er boðið upp á léttar veitingar
Við vonumst til að sjá ykkur sem allra flest og hvetjið aðra til að koma líka.