Þriðja árið í röð standa meistararnir hjá Brauð&co fyrir fjáröflunarátaki fyrir styrktarsjóð Göngum saman.
Stuðningur þeirra hefur verið félaginu afar mikils virði.
Alla vikuna 4. – 10. maí verða seldir brjóstasnúðar í bakaríum þeirra.
Allt söluandvirði snúðanna rennur óskipt í styrktarsjóðinn.
Nú treystum við á að velunnarar Göngum saman geri sér dagamun, kaupi gómsæta snúða og styrki um leið félagið.
Verði ykkur að góðu!