Fimmtudaginn 7. október kl. 17 fögnum við hjá Göngum saman bleikum október með hamingjustund í Mengi, Óðinsgötu 2.
Gunnhildur Óskarsdóttir ávarpar gesti og Ólöf Arnalds flytur ljúfa tóna.
Boðið verður upp nýtt málverk eftir listakonuna Huldu Vilhjálmsdóttur sem sigrast hefur á brjóstakrabbameini.
Óvenjuleg verk Huldu hafa náð miklum vinsældum á Íslandi og vakið athygli bæði hér heima og erlendis.
Gleðjumst saman og styrkjum gott starf. Drykkur og óvæntur glaðningur kemur með aðgöngumiðanum.
Við hlökkum til að sjá ykkur.