Fyrir göngu í Laugardalnum í gærkvöldi veitti Jói Fel formaður Landssambands bakarameistara Göngum saman höfðinglegan styrk að upphæð 1.080.000 kr. í tengslum við sölu brjóstabollanna á mæðradaginn 8. maí s.l.
Göngum saman færir þeim bestu þakkir fyrir.
Við afhendingu styrks LABAK til Göngum saman en bakarar bökuðu brjóstabollur handa landsmönnum í kringum mæðradaginn. Til vinstri, Ragnhildur Zoega frá GS, Jói Fel fomaður LABAK, Ragnheiður Héðinsdóttir SI og Gunnhildur Óskarsdóttir formaður GS.