Skip to main content

Reykjavíkurmaraþon 22. ágúst 2020

Eftir júní 22, 2020Fréttir

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram 22. ágúst nk.

Fimm vegalengdir verða í boði og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Að venju gefst þátttakendum kostur á að styrkja gott málefni með áheitasöfnun.

Göngum saman er eitt þeirra félaga sem hlauparar geta valið að styrkja og hefur maraþonið verið mikilvæg fjáröflunarleið síðustu ár.

Við hvetjum alla velunnara Göngum saman til að skrá sig á hlaupastyrkur.is og safna áheitum á Göngum saman.