Skip to main content

Umsóknarfrestur í styrktarsjóð Göngum saman – 1. september

Eftir júní 23, 2014Fréttir

Rannsóknastyrkjum verður úthlutað úr styrktarsjóði Göngum saman í sjöunda sinn í október n.k. og er áætlað að úthluta allt að tíu milljónum króna.

Auglýst er eftir umsóknum og rennur fresturinn út 1. september 2014. Umsóknum skal skilað á sérstöku umsóknareyðublaði sem er að finna hér  styrkumsokn_gongumsaman_2014.doc

Umsókn skal senda sem viðhengi á netfangið styrkir hjá gongumsaman.is merkt – Styrkumsókn 2014.

Hér að neðan er að finna auglýsinguna um styrki félagsins og er fólk hvatt til að hengja hana upp á viðeigandi vinnustöðum:auglysing-styrkur2014.pdf