Skip to main content

Bakarar selja brjóstabollur um mæðradagshelgina

Eftir maí 4, 2016Fréttir

Félagsmenn í Landssambandi bakarameistara, LABAK, efna til sölu á brjóstabollum í bakaríum um allt land um mæðradagshelgina, dagana 6.-8. maí. Bollusalan er til stuðnings Göngum saman. Sala á brjóstabollum, til styrktar Göngum saman er orðinn árviss viðburður í bakaríum um mæðradagshelgina.

Brjóstabollan í ár er gómsæt rjómabolla með berjafyllingu. Í tilefni verkefnisins verða búðir félagsmanna skreyttar með bleikum blöðrum og veggspjöldum um mæðradagshelgina.
Fyrirtæki og stofnanir eru hvött til að bjóða starfsmönnum upp á bollur með kaffinu á föstudag og einstaklingar eru hvattir til að taka þátt í mæðradagsgöngum og gæða sér á brjóstabollum um helgina. 

Eftirtalin bakarí selja brjóstabollur um mæðradagshelgina:
Bakarameistarinn, Austurveri, Glæsibæ, Húsgagnahöllinni, Mjódd og Suðurveri Reykjavík og  Smáratorgi, Kópavogi.
Bakarinn, Ísafirði
Björnsbakarí, Austurströnd, Dalbraut, Fálkagötu, Hringbraut og Lönguhlíð Reykjavík
Brauðgerð Kr. Jónssonar & Co. Akureyri
Geirabakarí, Borgarnesi
Guðnabakarí, Selfossi
Hjá Jóa Fel. Garðatorgi, Garðabæ, Holtavegi, JL húsinu og Kringlunni Reykjavík og Smáralind, Kópavogi
Okkar bakarí, Iðnbúð og Strikinu Garðabæ
Vort daglegt brauð, Strandgötu, Hafnarfirði
Kökuhornið, Bæjarlind, Kópavogi
Mosfellsbakarí, Háleitisbraut, Reykjavík og Mosfellsbæ
Reynir bakari, Dalvegi og Hamraborg, Kópavogi