Enn á ný standa meistararnir hjá Brauð&co fyrir fjáröflunarátaki fyrir styrktarsjóð Göngum saman.
Stuðningur þeirra hefur verið félaginu afar mikils virði.
Alla vikuna 3. – 9. maí verða gómsætir hindberjasnúðar seldir í bakaríum þeirra og rennur allt söluandvirði snúðanna óskipt í styrktarsjóðinn.
Nú treystum við á að velunnarar Göngum saman geri sér dagamun, kaupi gómsæta snúða og styrki um leið félagið.
Verði ykkur að góðu!
Nýlegar athugasemdir