Í tilefni af 5 ára afmæli styrktarfélagsins Göngum saman efnir félagið til málþings um mikilvægi grunnrannsókna á brjóstakrabbameini. Málþingið verður haldið í Hátíðasal Háskóla Íslands fimmtudaginn 13. september nk kl. 15-18. Það er öllum opið og aðgangur ókeypis.
Gildi íslenskra rannsókna á brjóstakrabbameini
Dagskrá 15:00 Setning, Gunnhildur Óskarsdóttir, formaður Göngum saman15:05 Ávarp, Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra15:15 Does research in breast cancer matter for the general public? Norman Freshney, forstöðumaður rannsókna hjá Breakthrough Breast Cancer í Bretlandi 15:45 Hverju hafa rannsóknir á brjóstakrabbameini á Íslandi skilað? Helga Ögmundsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands 16:05 Tónlistaratriði, Karlakórinn Fóstbræður 16:15 Grunnrannsóknir, forsenda framfara í lækningum, Friðbjörn Sigurðsson læknir 16:30 Hverju getur samtakamáttur hugsjónafólks og vísindamanna áorkað? Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands 16:45 Göngum saman brjóstanna vegna, forsýning á fræðslumynd Göngum saman 17:15 Málþingsslit Fundarstjóri: Þórólfur Árnason Erindi Norman Freshney er flutt á ensku en önnur dagskrá fer fram á íslensku
Að loknu málþingi er boðið upp á léttar veitingar
.
Dagskrá málþingsins í pdf-skjali:malthing_gongum_saman_dagskra.pdf
Nýlegar athugasemdir