Rannsóknastyrkjum verður úthlutað úr styrktarsjóði Göngum saman í fimmta sinn í október n.k. og er áætlað að úthluta alls 6 milljónum króna.
Auglýst er eftir umsóknum og rennur fresturinn út 15. september 2011. Umsóknum skal skilað á sérstöku umsóknareyðublaði sem er að finna hér á heimasíðu félagsins styrkumsokn_gongumsaman.doc og skal senda umsókn sem viðhengi á netfangið styrkir hjá gongumsaman.is merkt – Styrkumsókn 2011 -.
Hér er að finna auglýsinguna um styrki félagsins: auglysing-styrkur_GS2011.pdf
Nýlegar athugasemdir