Minningargangan um Kittý (Kristbjörgu Marteinsdóttur) í gegnum Héðinsfjarðargöng s.l. laugardag var einstaklega vel heppnuð. Hátt á annað hundrað manns tóku þátt í göngunni sem endaði í félagsheimilinu Hóli þar sem boðið var upp á dásamlega súpu og brauð. Um kvöldið var svo frábær skemmtun í Allanum á Siglufirði.
Eitthvað á hverjum degi – Minningarganga Kittýjar
Gengið frá Héðinsfirði um Héðinsfjarðargöng til Siglufjarðar og að íþróttamiðstöðinni að Hóli þar sem seld verður súpa og brauð.
Gangan hefst kl. 16. Fríar rútuferðir frá íþróttamiðstöðinni að Hóli að upphafsstað göngu kl. 15.
Kvöldskemmtun í Allanum á Siglufirði kl. 20.30.
Sjá nánar hér…
Sextíu og sex manns tóku þátt í Reykjavíkurmaraþoninu fyrir Göngum saman. Áheitasöfnun hefur gengið mjög vel en hægt er að heita á hlaupara til mánudags á hlaupastyrkur.is og því er ekki ennþá komin endanleg tala yfir það hversu mikið safnaðist.
Göngum saman þakkar innilega öllum hlaupurum yfir þátttökuna og einnig öllum þeim sem hétu á þá. Hvatningaliðinu á horninu á Ægissíðu og Lynghaga er þakkað fyrir hvatninguna og einnig öllum öðrum sem hafa hvatt hlauparana til dáða. Stuðningur ykkar allra er ómetanlegur.
Kæru félagar.
Nú hafa 67 skráð sig í maraþonið fyrir Göngum saman!
Við verðum með hvatningalið á horninu á Lynghaga og Ægissíðu eins og undanfarin ár frá klukkan 8:40 en fyrstu hlaupararnir leggja þá af stað frá Lækjartorgi.
Komið og hvetjið okkar fólk. Takið með ykkur hluti sem heyrist í s.s. hrossabresti og eldhúsáhöld … því fleiri sem koma og hvetja þátttakendur því skemmtilegra!
Áheitasöfnun er enn í fullum gangi. Látum gott af okkur leiða og heitum á þetta flotta fólk, sjá
http://www.hlaupastyrkur.is/godgerdafelog/felag/650907-1750
Tímasetning hlaups frá Lækjargötu
08:40 Maraþon, hálfmaraþon og boðhlaup.
09:35 10 km hlaup
Nú þegar hafa margir sýnt stuðning í verki við Göngum saman í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem haldið verður í Reykjavík 23. ágúst n.k. og 51 hefur skráð sig til þátttöku í maraþoninu fyrir félagið. Takk fyrir allir saman.
Nú eru aðeins nokkrir dagar eru til stefnu og við hvetjum alla til að taka höndum saman og styrkja félagið enn frekar með því að heita á hlauparana og hvetja þá þannig áfram. Hér má sjá lista yfir þá sem hlaupa fyrir Göngum saman og þar eru leiðbeiningar um hvernig unnt er að heita á hlaupara.
Kæru þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoninu fyrir Göngum saman.
Kærar þakkir fyrir að leggja okkar mikilvæga málefni lið!
Við hvetjum ykkur til að safna áheitum á hlaupastykur.is og benda velunnurum ykkar á http://www.hlaupastyrkur.is/godgerdafelog/felag/650907-1750
Félagið verður með hvatningastöð á horninu á Lynghaga og Ægissíðu og eru velunnarar hvattir til að mæta á staðinn og hvetja hlaupara.
Kristbjörg Marteinsdóttir, Kittý, eins og hún var jafnan kölluð, lést af völdum brjóstakrabbameins í lok árs 2009 eftir að hafa barist við sjúkdóminn í 6 ár. Í meðferðarferlinu lagði hún áherslu á að láta ekki sjúkdóminn stjórna lífi sínu heldur lifa til fulls. Hún stundaði göngu og setti sér það markmið að ganga daglega undir kjörorðunum „eitthvað á hverjum degi“. Kittý gerðist félagi í Göngum saman og var virkur og ötull félagi. Um tíma var hún formaður fjáröflunarnefndar félagsins og átti margar hugmyndir að öflun fjármagns í styrktarsjóðinn.
Ættingjar og vinir Kittýjar vilja heiðra minningu hennar og gera það í hennar anda með því að halda styrktargöngu laugardaginn 30. ágúst á Siglufirði þar sem Kittý var fædd og uppalin. Gengið verður frá Héðinsfirði um Héðinsfjarðargöng til Siglufjarðar og að íþróttamiðstöðinni að Hóli þar sem seld verður súpa og brauð. Þeir sem vilja styttri göngu geta sameinast göngumönnum við gangamunnann Siglufjarðarmegin og gengið að Hóli. Gangan hefst kl. 16 en fríar rútuferðir verða frá Hóli kl. 15 að upphafsstað göngunnar. Þarna gefst einstakt tækifæri til að fara fótgangandi um Héðinsfjarðargöng.
Um kvöldið verður skemmtun í Allanum á Siglufirði þar sem Magni Ásgeirs og félagar skemmta ásamt fleirum.
Gangan er gjaldfrjáls en aðgangseyrir að kvöldskemmtuninni er kr. 2.500. Þá verður ýmis varningur seldur fyrir og eftir göngu. Allur ágóði rennur til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini. Einnig hefur verið stofnaður reikningur í Sparisjóði Siglufjarðar og er reikningsnúmerið 1102-26-121264, kennitala 250645-3179. Öll framlög eru vel þegin.
Nú styttist í maraþonið. Við hvetjum okkar þátttakendur til að safna áheitum á hlaupastykur.is og einnig hvetjum við alla sem sjá sér fært að leggja okkur lið með því að heita á hlauparana okkar sjá http://www.hlaupastyrkur.is/godgerdafelog/felag/650907-1750
Rannsóknastyrkjum verður úthlutað úr styrktarsjóði Göngum saman í sjöunda sinn í október n.k. og er áætlað að úthluta allt að tíu milljónum króna.
Auglýst er eftir umsóknum og rennur fresturinn út 1. september 2014. Umsóknum skal skilað á sérstöku umsóknareyðublaði sem er að finna hér styrkumsokn_gongumsaman_2014.doc
Umsókn skal senda sem viðhengi á netfangið styrkir hjá gongumsaman.is merkt – Styrkumsókn 2014.
Hér að neðan er að finna auglýsinguna um styrki félagsins og er fólk hvatt til að hengja hana upp á viðeigandi vinnustöðum:auglysing-styrkur2014.pdf
Göngum saman er eitt af góðgerðarfélögunum sem taka þátt í Reykavíkurmaraþoni Íslandsbanka 24. ágúst nk. Félagar og aðrir velunnarar eru hvattir til að taka þátt fyrir félagið eða heita á þátttakendur sjá: http://www.hlaupastyrkur.is/godgerdafelog/felag/650907-1750
Nýlegar athugasemdir