Fimmtudaginn 6. október nk. munu umsækjendur um rannsóknarstyrki Göngum saman kynna rannsóknarverkefni sín.
Kynningarnar munu fara fram kl. 16:45 – 19:00 í Háskóla Íslands, stofu HT300 í Háskólatorgi, Sæmundargötu 4, Reykjavík (sama húsi og Bóksala stúdenta og matsalan/Háma er í).
Félagar eru hvattir til að mæta.
Vakin er athygli á gestafyrirlestri Lífvísindaseturs og GPMLS framhaldsnámsprógrammsins mánudaginn 19. september kl. 11:00 í Hringsal, Barnaspítala Hringsins, Landspítala v/Hringbraut. Sjá nánar á heimasíðu Lífvísindaseturs.
Fyrirlesari: Dr. Susan M. Domchek, Basser Professor in Oncology at the Perelman School of Medicine, University of Pennsylvania, USA
Titill á íslensku: Út fyrir BRCA1 og BRCA2 – Hvert stefnum við?
Titill á ensku: Beyond BRCA1 and BRCA2 – Where do we go from here?
Allir velkomnir
Í dag 13. september eru níu ár frá stofnun Göngum saman. Félagði hefur verið einstaklega farsælt og er það að þakka þeim fjölmörgu sem stutt hafa félagið frá upphafi.´12 október nk mun Göngum saman veita styrki til brjóstakrabbameinsrannsókna eins og gert hefur verið frá upphafi.
Göngum saman auglýsir eftir umsóknum um styrki til grunnrannsókna á brjósta-krabbameini. Áætlað er að veita allt að 10 milljónum í styrki á árinu 2016.
Vísindamenn og nemendur í rannsóknatengdu framhaldsnámi (meistara- eða doktorsnámi) við háskóla og rannsóknastofnanir geta sótt um styrk.
Skilyrði er að verkefnið flokkist sem grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini. Ekki er veittur styrkur til tækjakaupa
Umsóknum skal skilað á sérstöku umsóknareyðublaði sjá hér: auglysing_styrkur_2016.doc fyrir 5. september nk. á netfangið styrkir@gongumsaman.is merkt -Styrkumsókn 2016
Styrkurinn verður veittur í október, en októbermánuður er helgaður baráttunni gegn brjóstakrabbameini.
Sjá einnig auglýsingu: gs_styrkumsokn_2016.doc
Áttatíu og átta manns tók þátt í Reykjavíkurmaraþoninu fyrir Göngum saman. Áheitasöfnun gekk mjög vel og nú þegar hafa safnast 2.532.786 kr. Sem er stórkostlegt! Hægt er að heita á hlaupara til mánudags á hlaupastyrkur.is og því er ekki ennþá komin endanleg tala yfir það hversu mikið safnaðist.
Göngum saman þakkar innilega öllum hlaupurum yfir þátttökuna og einnig öllum þeim sem hétu á þá. Hvatningaliðinu á horninu á Ægissíðu og Lynghaga er þakkað fyrir hvatninguna og einnig öllum öðrum sem hafa hvatt hlauparana til dáða. Stuðningur ykkar allra er ómetanlegur.
Skilaboð til þátttakenda í maraþoninu:
Ragnheiður Jónsdóttir stofnfélagi í Göngum saman býður öllum sem taka þátt fyrir félagið í súpu í Hannesarholti að maraþoninu loknu. Hannesarholt er staðsett á Grundarstíg 10 á horni Skálholtsstígs.
Nú hafa 72 þátttakendur skráð sig í maraþonið fyrir Göngum saman og ennþá er opið fyrir netskráningu!!
Við verðum með hvatningalið á horninu á Lynghaga og Ægissíðu eins og undanfarin ár frá klukkan 8:40 en fyrstu hlaupararnir leggja þá af stað frá Lækjartorgi.
Komið og hvetjið okkar fólk. Takið með ykkur hluti sem heyrist í s.s. hrossabresti og eldhúsáhöld …
Því fleiri sem koma og hvetja þátttakendur því skemmtilegra!
Áheitasöfnun er enn í fullum gangi. Látum gott af okkur leiða og heitum á þetta flotta fólk, sjá www.hlaupastyrkur.is/godgerdafelog/charity/52/gongum-saman
Tímasetning hlaups frá Lækjargötu
08:40 Maraþon og hálfmaraþon
09:35 10 km hlaup
Göngum saman verður með hvatningalið á horninu á Lynghaga og Ægissíðu eins og undanfarin ár frá klukkan 8:40 en fyrstu hlaupararnir leggja þá af stað frá Lækjartorgi.
Komið og hvetjið okkar fólk. Takið með ykkur hluti sem heyrist í s.s. hrossabresti og eldhúsáhöld … því fleiri sem koma og hvetja þátttakendur því skemmtilegra!
Áheitasöfnun er enn í fullum gangi. Látum gott af okkur leiða og heitum á þetta flotta fólk, sjá https://www.hlaupastyrkur.is/godgerdafelog/charity/52/gongum-saman
Göngum saman á Akureyri mun hefja göngu kl. 17:00 á þriðjudögum í ágúst og september. Til að fá fjölbreytni í göngurnar verður lagt af stað frá mismunandi stöðum og er fólk beðið að hafa samband við Þorgerði Sigurðardóttur á facebook eða með tölvupósti togga@simnet.is til að fá upplýsingar um upphafsstað.
Allir velkomnir.
Nýlegar athugasemdir