Vekjum athygli á golfmóti laugardaginn 13. júlí nk til styktar verkefninu Kastað til bata en verkefnið er endurhæfing sem Krabbameinsfélag Íslands hefur staðið fyrir til að veita konum sem greinst hafa með brjóstakrabbamein tækifæri til að styrkja sig á líkama og sál með því að æfa flugukast í stórkostlegu umhverfi, njóta samvista við veiðifélaga með svipaða reynslu – og veiða urriða. sjá auglýsingu um golfmótið http://www.krabb.is/Um-felagid/Frettir/nanar/6861/golfmot-til-styrktar-kastad-til-bata
Við upphaf vikulegrar göngu Göngum saman í gær afhenti Jóhannes Felixson formaður Landssamband bakarameistara (LABAK) Göngum saman afrakstur sölu á brjóstabollunni í ár 1.7 miljónir. Allt fé sem Göngum saman safnar fer í styrktarsjóð en félagið veitir árlega styrki til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini.
Göngum saman hefur átt gjöfult samstarf við LABAK undanfarin 3 ár þar sem bakarameistarar vítt og breitt um landið hafa tekið höndum saman og selt brjóstabollur til styktar félaginu tengslum við mæðradagsgönguna. Hefur LABAK með sölu á brjóstabollunni í ár styrkt Göngum saman um hátt í 5 milljónir á síðustu þremur árum.
Bakarameistarar hafa sýnt Göngum saman dýrmætan stuðning í verki með sölu á bollunum og færir félagið þeim alúðarþakkir fyrir.
Á myndinni má sjá Jóhannes Felixson afhenda Gunnhildi Óskarsdóttur, formanni Göngum saman styrkinn.
Rannsóknastyrkjum verður úthlutað úr styrktarsjóði Göngum saman í sjöunda sinn í október n.k. og er áætlað að úthluta allt að 8 milljónum króna.
Auglýst er eftir umsóknum og rennur fresturinn út 1. september 2013. Umsóknum skal skilað á sérstöku umsóknareyðublaði sem er að finna hér á heimasíðu félagsins: styrkumsokn_gongumsaman_2013.doc
Umsókn skal senda sem viðhengi á netfangið styrkir hjá gongumsaman.is merkt – Styrkumsókn 2013 -.
Hér að neðan er að finna auglýsinguna um styrki félagsins og er fólk hvatt til að hengja hana upp á viðeigandi vinnustöðum; auglysing-styrkur2013.pdf
Í dag stóðu Göngum saman, Kraftur og Samhjálp kvenna í samvinnu við læknadeild Háskóla Íslands fyrir málþingi um erfðir og brjóstakrabbamein. Um tvö hundruð manns mættu á málþingið sem var mjög vel heppnað. Fjallað var um málþingið í 10 fréttum á RÚV sjá
http://www.ruv.is/sarpurinn/tiufrettir/11062013-0
Mjög góð þátttaka var í Sjóvá kvennahlaupi ÍSÍ s.l. laugardag, 8. júní. Göngum saman þakkar kvennahlaupsnefnd ÍSÍ fyrir mjög ánægjulegt samstarf í tengslum við hlaupið.
Málþing um erfðir og brjóstakrabbamein verður haldið þriðjudaginn 11. júní kl. 16:30 – 18:30 á vegum Göngum saman,
Krafts og Samhjálpar kvenna í samvinnu við læknadeild Háskóla Íslands
Staðsetning: Háskólatorg Háskóla Íslands, salur 102.
Allir velkomnir
Göngum saman er samstarfsaðili Kvennahlaups ÍSÍ í ár og er kjörorð hlaupsins: Hreyfum okkur saman.
Eins og alltaf er hlaupið á fjölmörgum stöðum á landinu og hvetjum við allar konur sem mögulega geta að taka þátt sjá yfirlit yfir hlaupastaði www.sjova.is/files/2013_5_27_Hlaupastadir_Island.pdf
Tökum höndum saman og hreyfum okkur saman í kvennahlaupinu!
Það var mikil stemming alls staðar í mæðradagsgöngu Göngum saman s.l. sunnudag er um 2000 manns gengu til stuðnings grunnrannsóknum á brjóstakrabbameini. Nú eru komnar myndir og fréttir frá mörgum stöðum inn á heimasíðuna, sjá hér.
Þátttakendur teygja vel í göngunni á Reyðarfirði.
Um tvö þúsund manns tóku átt í styrktargöngu Göngum saman sem fram fór á 14 stöðum á landinu í dag.
Er þetta mesti þátttakendafjöldi frá upphafi en þetta er í sjöunda sinn sem Göngum saman stendur fyrir göngu til styrktar grunnrannsóknum á brjóstakrabbameini. Er þátttakendum um land allt og öllum þeim sem lögðu félaginu lið á einn eða annan hátt við undirbúning og framkvæmd göngunnar færðar innilegar þakkir.
LABAK Landssamband bakarameistara hefur hafið sölu á brjóstabollunum í bakaríum landsins. Þetta er í þriðja sinn sem LABAK styður Göngum saman með sölu á brjóstabollunni mæðradagshelgina. Við hvetjum alla til að kaupa bollur með kaffinu og styrkja í leiðinni gott málefni.
Nýlegar athugasemdir