Á mánudaginn flytjum við okkur yfir í Laugardalinn og göngum um dalinn næstu tvö mánudagskvöld.Eftir það verður gengið frá Fríkirkjunni.
Í vikulegar göngur Göngum saman eru allir velkomnir, Gengið er í klukkustund undir forystu Guðnýjar Aradóttur.
Á mánudaginn flytjum við okkur yfir í Laugardalinn og göngum um dalinn næstu tvö mánudagskvöld.Eftir það verður gengið frá Fríkirkjunni.
Í vikulegar göngur Göngum saman eru allir velkomnir, Gengið er í klukkustund undir forystu Guðnýjar Aradóttur.
Styrktar- og menningarsjóður Norvíkur og Krónan stóðu fyrir átaki í október þegar Krónan seldi fjölnota poka til styrktar Göngum saman.
Með átakinu söfnuðust 400.000 krónur sem voru afhendar félaginu 30. október s.l.
Í tilkynningu um niðurstöður söfnunarinnar segir, að með sölu á fjölnota pokum hafi tvær flugur verið slegnar í einu höggi þar sem notkun fjölnota poka er umhverfisvæn og því hvatt til umhverfisverndar um leið og gott málefni var styrkt.
Frá afhendingu afraksturs söfnunarinnar. Á myndinni eru (f.v.) Gísli Jón Magnússon frá Styrktar- og menningarsjóði Norvíkur, Berglind Ósk Ólafsdóttir markaðsstjóri Kaupáss og Gunnhildur Óskarsdóttir og Linda Björk Ólafsdóttir fra Göngum saman.
Göngum saman þakkar innilega fyrir þennan höfðinglega styrk.
Það var mikil stemming og gleði á árlegu Brjóstaballi Göngum saman í Iðnó í gærkvöldi. Anna Svava hóf skemmtunina við góðar undirtektir gesta og síðan tók hljómsveitin Blek og byttur við og hélt uppi miklu stuði. Ólafía Hrönn kom beint af frumsýningu í Þjóðleikhúsinu og söng nokkur lög með hljómsveitinni.
Göngum saman þakkar þeim sem komu fram á Brjóstaballinu – Blek og byttur, Ólafía Hrönn, Óli dj og Anna Svava – takk takk. Þá þökkum við Margréti í Iðnó að bjóða okkur velkomin í Iðnó þriðja árið með Brjóstaballið og svo öllum gestunum sem gerðu þetta ball eins mikið stuðball og raunin var!
Stjórn Göngum saman fór þess nýlega á leit við frú Vigdísi Finnbogadóttur að hún yrði verndari félagsins, og samþykkti hún erindið góðfúslega. Það er Göngum saman ákaflega mikill heiður að frú Vigdís hafi tekið að sér að vera verndari félagsins og kunnum við henni bestu þakkir fyrir.
Í Morgunblaðinu í dag er viðtal við dr. Norman Freshney, forstöðumann rannsókna hjá Breakthrough Breast Cancer samtökunum í Bretlandi en Norman var fyrirlesari á afmælismálþingi Göngum saman í september s.l. Sjá viðtalið við Norman hér:
Hið árlega Brjóstaball Göngum saman verður haldið í Iðnó
Landsbyggðarhljómsveitin Blek og byttur loksins í Reykjavík.
Heldur öllum á gólfinu!!
Ari Eldjárn heiðrar samkomuna kl. 22.15
Aðgangseyrir 2.500 rennur til rannsókna á brjóstakrabbameini. Allir velkomnir.
Brjóstaballsnefnd Göngum saman.
Göngum öll saman 15. október kl. 17:30Í tilefni af alþjóðlegum degi helguðum barátttunni gegn brjóstakrabbameini hvetjum við alla; konur og karla, stóra sem smáa, að hitta okkur og ganga saman í bleiku í kringum Tjörnina í Reykjavík. Mæting kl. 17:30 hjá bleika Hljómskálanum.Guðný Aradóttir leiðir gönguna. Tefélagið býður upp á te eftir gönguna og veitingastaðurinn UNO 15% afslátt af veitingum. Hlökkum til að sjá ykkur.
Krabbameinsfélagið, Samhjálp kvenna og Göngum saman
sjá auglýsingu:
gongum_saman_auglysing.pdfgongum_saman_auglysing.pdf
4. október 2012 veitti Göngum saman íslenskum rannsóknaraðilum á sviði grunnrannsókna á brjóstakrabbameini rannsóknarstyrki að fjárhæð kr. 10 milljónir króna. Með þessari styrkveitingu hefur Göngum saman úthlutað alls rúmum 32 milljónum króna til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini á fimm árum. Við styrkveitinguna söng og spilaði á hljómborð Ingibjörg Helga Steingrímsdóttir nemandi í MR og oktettinn Einn tvöfaldur úr Karlakórnum Fóstbræðrum gladdi einnig viðstadda með söng sínum.
Styrkurinn í ár skiptist á milli fimm aðila:
Fræðslumyndin Göngum saman brjóstanna vegna var sýnd á RÚV í gær, það er líka hægt að sjá hana hér
http://www.ruv.is/sarpurinn/gongum-saman-brjostanna-vegna/02102012-0
Fræðslumyndin Göngum saman brjóstanna vegna sýnd á RÚV i kvöld, 2. okt. kl.20:10.
í tilefni af 5 ára afmæli félagsins var ákveðið að fá kvikmyndagerðarmanninn Pál Kristin Pálsson til að gera heimildarmynd um Göngum saman og mikilvægi grunnrannsókna á brjóstakrabbameini. Markmiðið með myndinni er að kynna félagið, upphaf þess, starfsemi og fyrir hvað það stendur, þe. að leggja áherslu á mikilvægi hreyfingar og að styrkja grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini. Félagið fékk nokkur fyrirtæki í lið með sér til að kosta myndina. Ekki missa af henni!
Nýlegar athugasemdir